Sushi námskeið

Hópefli

Reykjavík

Stærð hóps

10-40 manns

Verð frá

19.990 kr

Hver leynir á sér sem sushi meistari?


Setjið vinnuna aðeins til hliðar og takið fram sushi-motturnar! Hér fær hópurinn að spreyta sig á sushi-gerð, læra réttu handtökin og að sjálfsögðu njóta afrakstursins saman.


Í sushi skólanum hjá Umami Sushi  fær hópurinn að kynnast töfrunum á bak við gott sushi  frá   A–Ö. Axel Björn Clausen leiðir hópinn í gegnum ferlið og kennir réttu handtökin allt frá meðhöndlun hráefnis og bragðsamsetningum yfir í að rúlla sushi sem lítur næstum því of vel út til að borða.


Stemningin er afslöppuð og skemmtileg og allir fá að taka virkan þátt, hvort sem þeir eru vanir sushi snillingar eða hafa aldrei haldið á sushi mottu áður.


Auðvitað kemur besti hlutinn í lokin: hópurinn sest niður og nýtur þess sem hann hefur búið til saman.


Frábær hópafþreying fyrir vinnufélaga sem vilja prófa eitthvað öðruvísi, læra nýja takta og eiga skemmtilega stund saman  með nóg af sushi í kaupbæti.


Tilvalið fyrir starfsmannadag, hópefli, óvissuferð eða skemmtilegt upphaf á kvöldi.


Innifalið

• Leiðsögn í sushi-gerð

• Kennsla í meðhöndlun hráefnis

• Sushi-rúllur og mismunandi bragðsamsetningar

• Allt hráefni og búnaður

• Þið njótið þess sushi sem þið útbúið

• Eitt vínglas fylgir með



Lengd: um 2 klst.


Staðsetning: Hafnartorg Gallerý, Geirsgata 17, 101 Reykjavík


 

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.

Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.